Neistinn í góðum gír
Ójá, Neisti nýrrar aldar er aftur kominn á göturnar. Það er æði! Reyndar er hann ekki alveg kominn í sitt besta form, því enn á eftir að fá varahluti frá umboðinu. Næstu vikuna mun ég því halda áfram að drepa á mér á öllum ljósum, en bensíngjöfin er hins vegar ekki föst inni.
Bifreiðaverkstæðið sem ég skipti við heitir Bílhúsið og þeir eru snillingar. Segi það og skrifa. Sanngjarnt verð og fín þjónusta. (Ég sagðist vera að byrja í auglýsingabransanum…)
Viðgerðin kostaði miklu minna en ég óttaðist. Fjármálunum borgið í bili.
* * *
Kettinum er óskað til hamingju með styrkinn úr menningarsjóði Björns Þorsteinssonar. Las um þetta í Mogganum á netinu. Gott mál!
* * *
Stefán Jónsson var í mat í gærkvöldi. Við átum þetta fína lasagna og drukkum rauðvín með. Þegar komið var á rauðvínsflösku tvö voru heimspekiumræðurnar um Karl Mannheim og ágreining Poppers og Kuhn orðnar heví stöff. Fikruðum okkur þá yfir í viskýið. Nokkur glös af Highland Park kom þeirri hugmynd inn í kollinn á okkur að rétt væri að fara út í gönguferð. Löbbuðum fram og aftur um Miklatúnið og Norðurmýrina þótt klukkan væri orðin hálf tvö. Sá göngutúr hressti mann svo sem við, en var ekki að skora nein prik hjá Steinunni þegar skriðið var uppí seint um síðir.
Vaknaði á undan vekjaraklukkunni. Lá og mannaði mig upp í að líta á klukkuna, til þess eins að fatta að hún væri 7:27 og myndi hringja eftir þrjár mínútur. Er til eitthvað meira svekkjandi í heiminum?
Úgg…