Bjór
Jæja, þá er ég búinn að prufa páskabjóra bæði Viking og Egils Skallagrímssonar og það verður að segjast að í ár hefur Viking vinninginn. Þetta er bara assgoti fínn bjór hjá þeim, þó erfitt sé að greina keiminn af „mikið brenndu brauði“ sem lofað er á flöskumiðanum. írstíðabjórar brugghúsanna eru orðnir ófáir. Það er í það minnsta jólabjór, páskabjór og a.m.k. annað fyrirtækið var með þorrabjór. Á það minnsta drakk ég eitthvað slíkt frá Agli og þótti býsna gott.
Það sem ég fæ þess vegna ekki skilið er hvernig stendur á því að allir „fastabjórarnir“ eða þær tegundir sem eru í heilsárssölu séu jafn óspennandi og raun ber vitni? Viking, Gullið, Thule, Spegils og hvað þetta nú allt saman heitir – er ýmist vont, bragðlaust eða hvort tveggja. Samt eru brugghúsin greinilega fær um að gera miklu betur. Skrítið!