Enn um vita…
Úps, ég hljóp víst aðeins á mig í síðustu bloggfærslu þar sem ég taldi upp alla hugsanlega vitaáhugamenn í vina- og kunningjahópnum. Steinunn varð hin súrasta yfir að hafa gleymst á listanum. Hún er einmitt mikil áhugakona um vita eins og ég átti að svo sem að þekkja. Hún hefur t.d. lengi kvabbað í mér að fara að Reykjanesvita þegar sumarið verður komið fyrir alvöru. Auðvitað verður Steinunn að fá að ganga í klúbbinn.
Á sama hátt steingleymdi ég Jóni varðskipsmanni, sem er sérlega áhugasamur um vita en verður væntanlega á sjónum þegar stofnfundurinn verður haldinn. Á varðskipsmennsku sinni upplifði hann einu sinni að sækja heim Óla komma sem þá var á Hornbjargsvita. Ekki er það amalegt.
* * *
Elskulegum foreldrum mínum er þakkað fyrir matarboðið á laugardaginn – kannski maður ætti að stefna að því að eiga oftar afmæli? Við Tjörnina fær bestu meðmæli fyrir mat og vín, en mikið óskaplega var þetta ömurlega dapur viskýskápur. Hvernig stendur á því að fínir veitingastaðir sem leggja sig alla fram um að vera með bestu léttvín sem völ er á láta taka sig í bólinu með hörmulegt bjór- og viskýúrval? Það er skrítið…
* * *
Jóhanna fær hamingjuóskir með afmælið. (Ekki að það hafi mikið upp á sig að senda slíkar óskir á þessum vettvangi, þar sem hún er víst alveg hætt að lesa blogg).
* * *
Það verður ekkert bloggað um Fram í dag og ekkert um handbolta næstu mánuði.
Jamm.