Kosningarnar eru ónýtar!
…eða öllu heldur er endanlega búið að eyðileggja kosningaþættina í sjónvarpinu fyrir manni. Nýtt afl náði að safna meðmælendunum og býður fram alls staðar á landinu. Það þýðir að Guðmundur G. Þórarinsson eða Jón Magnússon munu mæta í hvern einasta kappræðuþátt fram að kosningum. Hafi verið einhverjar líkur á að ég nennti að horfa á slíkt sjónvarpsefni þá eru þær endanlega fyrir bí núna.