Á þessum degi…-blogg
Hvað er til ráða þegar mann langar til að blogga en hefur ekki frá neinu að segja? Tja, ég gæti dúndrað út fótboltabloggi um Fram og Luton – en veit að flestum lesenda minna er í nöp við það. Þá er alltaf klassískt að grípa til: „á þessum degi…-bloggsins“.
* * *
Á þessum degi árið 1871 var Parísarkommúnan endanlega brotin á bak aftur. Valdastéttirnar murkuðu lífið úr fjölda fólks og þótti harlagott. Á dag ættu allir góðir menn að flagga í hálfa stöng.
* * *
Á þessum degi árið 1894 fæddist Dashiel Hammett. Hann var án nokkurs vafa einhver allra besti reyfarahöfundur sögunnar og mikill kommúnisti. Möltufálkinn er stórgóð bók og fín bíómynd. The Thin Man er þó best. Brennivínið fór þó illa með hann og margt af draslinu sem hann gerði fyrir Hollywood var afleitt. Á alltaf ólesið smásagnasafn eftir Hammett heima í bókaskáp. Kannski ég gluggi í það um næstu helgi?
* * *
Á þessum degi árið 1907 fæddist Rachel Carson. Silent Spring, e. Raddir vorsins þagna, var tímamótaverk í sögu umhverfisverndarhreyfingarinnar. Vef-Þjóðviljinn hatar Rachel Carson og einkum þá fullyrðingu hennar að DDT sé háskalegt. Einhverju sinni gekk Vef-Þjóðviljinn meira að segja svo langt að halda því fram að DDT væri ekki hættulegt nema það væri drukkið eins og djús. Vef-Þjóðviljinn er oft klikk, en hann má eiga það að hann er konsekvent í sínu rugli. Það er alltaf betra.
* * *
Á þessum degi fyrir sléttum áttatíu árum fæddist Henry Kissinger. Margir hefðu átt það meira skilið að ná áttræðisaldri en hann.
* * *
Á þessum degi árið 1967 fengu ástralskir frumbyggjar í fyrsta sinn ástralskt ríkisfang. Saga kúgunar á þeim er með hreinum ólíkindum og óskiljanlegt að ístralir skuli ekki fást til að horfast í augu við þessa dökku fortíð sína.
íhm…