Molar
Hér kemur brotakennd bloggfærsla. Það eru bara nokkrir smáhlutir sem ég verð að koma frá mér:
1. Asnaleg nöfn
„Það er mikið kot Hákot“ sögðu Reykvíkingar fyrr á árum og þótti bráðfyndið. Á dag myndu menn ekki ná fyndninni, enda keppast menn við að gefa smávegarstubbum, húskofum og skógarlundum tilkomumikil nöfn. Það sjoppulegasta sem ég hef rekist á lengi er þó á lóð nýja Orkuveituhússins (eða Helstirnisins eins og gárungarnir kalla það). Þar er verið að hlaða tvo snotra steinveggi á miðju bílaplani og milli þeirra verður nokkrum tráplöntum skellt niður og jafnvel blætt í eina eða tvær túnþökur. Og hvað munu herlegheitin nefnast? Jú: Aldamótagarður.
2. Ódrepandi óvinir
Það er þekkt brella í Hollívúddmyndum, þegar framleiðendurnir eru ekki vissir um hvort til standi að gera framhaldsmynd, að halda öllu opnu með það hvort vondu karlarnir séu dauðir. Þetta er m.a. gert meeð því að láta þá detta fram af bjargbrúnum. Núna hafa bandarísk stjórnvöld hins vegar tekið upp sömu stefnu. Á hverri einustu viku skiptast vondu karlarnir í írak á að vera lífs eða liðnir. Nú síðast upplýsir Mogginn að „Eiturefna-Alí“ sé kannski ekki dauður eftir allt saman. Hvað voru það aftur margir óbreyttir borgarar sem við tættum í sundur til að reyna að drepa hann í vor?
Þeir sem nenna ennþá að eltast við allar frásagnirnar af meintum dauða eða ekki-dauða Bin Ladens, Saddams og hr. Alí – myndu gera vel í því að blaða í hálfrar aldar gömlum blöðum og lesa allar kenningarnar um að Hitler væri lífs. Þetta mun geta haft ofan af fyrir okkur í tíu ár í viðbót og orðið efniviður í marga reyfara og vondar bíómyndir.
Og hvað er með þetta viðurnefni „Eiturefna-Alí“? Hvað varð um þá gömlu, góðu list að búa til töff viðurefni á illmenni? Það eru a.m.k. þrír fyrrum íraks-leiðtogar sem heita „Eiturefna-eitthvað“. Meira að segja trymbill í lélegri pönkhljómsveit myndi ekki taka sér svona viðurnefni.
3. Gatsby-strákurinn er snúinn aftur
Einn af betri karakterunum í Smáfólki er snúinn aftur. Undanfarna daga hefur Lucy verið að kenna í sunnudagaskólanum og einn pjakkurinn svarar öllum Biblíuspurningunum á þann hátt að „The Great Gatsby“ hafi gert hitt og þetta. Snilldartýpa.
4. Félagið sem hvarf
Ég gerðist stofnfélagi í Vitafélaginu og borgaði árgjald. Hef svo ekki heyrt boffs. Það var lakara.
5. F***** fjárglæframenn
Mínir menn í Englandi, Luton Town, eru komnir í hendur fjárglæframanna. Einhver vitleysingur hefur náð yfirráðum í félaginu – talar drýgindalega um að reisa 75.000 manna völl, koma upp Formúlu1-kappakstursbraut og að liðið verði að komast upp í úrvalsdeildina 2006. Þetta hljómar eins og verið sé að steypa klúbbnum beint til andskotans. Ég er foxillur.