Samhliða því að halda úti þessari bloggsíðu er ég einn þriggja/fjögurra ritstjóra á tenglasíðunni á blogginu hans Palla. Þar skelli ég inn tenglum á hvaðeina sem ég rekst á þegar ég er að slóra og hangsa á netinu.
Um daginn tengdi ég yfir á síðu Kean Soo, Kandamanns af asískum uppruna, sem bloggar á teiknimyndasöguformi. Þessi teiknimynd vakti mig til nokkurrar umhugsunar. (Fyrir þá sem ekki nenna að smella á tengilinn gengur sagan út á það að „Keaner“ gengur niður götu en gáir ekki að sér og fær umferðarpolla (svipaðan og þá í Austurstrætinu) í neðanverðan kviðinn. Hann prísar sig sælan að hafa ekki fengið járnstöngina í punginn – en áttar sig um leið á því að slíkt óhapp hefði gert mjög mikið fyrir teiknimyndasögubloggið…
Er þetta ekki í hnotskurn vandamál bloggarans? Sú afleita staða þegar lífið er of viðburðasnautt og átakalítið til að gefa tiefni til bloggs?
Bækur eru ekki skrifaðar um bragðdaufa tilveru meðalmannsins. Kvikmyndir rekja ekki í smáatriðum hversdagslegar athafnir þar sem fátt eða ekkert kemur á óvart. Hvernig er þá hægt að ætlast til þess að bloggið, sem er bæði hrárri og einfaldari miðill, beri slíka flatneskju.
Ég stóð mig að því að velta fyrir mér áður en ég sofnaði í gær – hvern andskotann ég gæti skrifað um í dag. Jújú, Steinunn eldaði kjúlla og ég málaði nokkra veggi heima hjá afa og ömmu. Útaf fyrir sig gott mál, en heldur rýr efniviður – meira að segja fyrir frægasta og besta bloggara landsins og líklega Norðurlandanna.
Ekki get ég farið að kljást við þunglyndi fyrir opnum tjöldum – til þess er ég of áhyggjulaus og almennt í góðu skapi. Ekki nenni ég að rífast um þjóðmál og pólitík – það get ég gert hvar sem er annars staðar. Og ekki virðist það hafa mikið upp á sig fyrir mig að ráðast í nýyrðasmíði, því ef marka má svarskeytið sem Erna fékk frá Merði írnasyni þá óskar orðabókin ekki eftir fleiri „hnyttnum“ athugasemdum frá mér.
Hvað er þá til ráða? Fótboltablogg? – Fjandinn hafi það, markhópur þessa bloggs er öðrum þræði ungar, vinstrisinnaðar menntakonur og þeim er allmörgum í nöp við keppnisíþróttir og horfa bara á íþróttaþáttinn að kvöldi Kvennahlaupsdagsins. Iss, það er ekkert annað að gera í stöðunni:
* * *
Úff hvað ég er orðinn stressaður fyrir KA-leiknum í kvöld. Ef marka má Fram-síðuna er liðið nálega allt meitt. Varamannabekkurinn verður skipaður börnum og miðjan og framlínan munu varla halda út nema í klukkutíma. Engu að síður VERíUM við að vinna. Annars er allt tapað. Hvernig á maður að geta einbeitt sér í vinnunni við svona aðstæður. – Það væri alveg eftir öðru að gul ógeðið færi að steikja mann seinni partinn til að auka á hörmungarnar.
Jamm