Dauði netsins

Gula ógeðið skí­n og steikir mig á skrifstofunni. Óstuð! Alltof heitt til að vinna og gestir forðast söfn í­ svona veðri.

Eina rétta í­ stöðunni er að hanga á netinu.

Það er merkilegur andskoti þegar maður dettur niður að skoða blogg, hversu rútí­nubundið það verður. Maður les sömu sí­ðurnar aftur og aftur, en aðrar – þó áhugaverðar séu komast ekki inn í­ rútí­nuna.

Þetta gildir sérstaklega um útlenskar bloggsí­ður. Ég reyni að fylgjast með 5-6 útlenskum bloggurum og út frá þeim rambar maður inn á fjölda annarra góðra penna. Sjaldnast les maður þá samt nema einu sinni. Það eru jú takmörk hvað er hægt að halda mörgum boltum á lofti í­ einu.

19. hæðin er gott blogg eftir Mark Siegel, bandarí­skan lögfræðing sem þjáist af mænurýrnun og er bundinn við hjólastól. Ég las bloggið hans fyrir margt löngu og steingleymdi honum svo aftur. Á dag rambaði ég svo inn á sí­ðuna aftur. Færslan hans frá 16. júlí­ er með skemmtilegum pælingum. Þetta er maður sem vert er að lesa reglulega.