Sviptingar í bílamálum

Besti og frægasti bloggari landsins og hugsanlega Norðurlandanna (en þó ekki besti bloggari eins og sumum virðist ætla að reynast erfitt að skilja) er væntanlega að fara að skipta um bí­l í­ lok dagsins.

Neisti nýrrar aldar mun eignast athvarf á nýjum stað, en þess í­ stað mun ég festa kaup á gömlum bláum Volvo. Þessu fagna allir góðir menn.

Þessi kaup hafa verið í­ deiglunni frá því­ í­ gærmorgun og nú þegar hef ég velt því­ fyrir mér hvaða gælunafn nýji bí­llinn gæti fengið. Neisti nýrrar aldar var vissulega gott og tilkomumikið nafn, en að þessu sinni ætla ég að halda mig við eitthvað hefðbundnara og yfirlætisminna. Með ví­sun í­ bláa litinn fer vel á því­ að kalla vagninn: Bláa drauminn.

Ójá!