Kínverjar og Indverjar eru litlir vinir eins og flestir vita. Indverjarnir sem ég umgekkst í Edinborg uppástóðu t.d. að Indland og Pakistan myndu aldrei fara í stríð. Raunverulega ástæðan fyrir kjarnorkuvopnaáætlun Indlands væri Kína – ekki Pakistan.
Á gær hittum við Palli Indverja við Reykjavíkurtjörn. Við tókum tal saman og ræddum meðal annars um pólitík. Hann sagðist vera frá Kalkútta, sem væri stærsta samfélag í heimi sem vinstrimenn væru við völd í. Þá spurði hann okkur hversu margir byggju á Íslandi. Fannst Íslendingar augljóslega hallærislega fáir.
Eftir að við Palli höfðum stunið út úr okkur nokkuð nákvæmri tölu sagði sá indverski að það væri skrítið fyrir sig að koma í svona samfélag – hann væri jú einu sinni frá fjölmennasta ríki heims.
Sem fyrr segir vissi ég að Indverjar og Kínverjar væru litlir vinir, en að Indverjar héldu því fram að þeir væru fjölmennastir hef ég aldrei heyrt áður. Alltaf gaman að fólki sem rífst við heimsatlasinn.
* * *
Wales – eða Kymría eins og kannski væri réttara að nefna landið – tapaði fyrir Serbíu/Svartfjallalandi í gær. Serbía/Svartfjallaland heitir í breskum fjölmiðlum Serbia & Montenegro. Það er skammstafað S&M – sem mér finnst pínkulítið fyndið.
Íslenska landsliðið lék ömurlega í gær. Mætti í færeyska landsliðsbúningnum í vinnuna til að andæfa úrslitunum.
Jamm.