Það er gaman í vinnunni þessa daganna. Við Sverrir höfum verið að klára írafoss-sýninguna sem verður tilbúin um miðja næstu viku. Ljósakassamyndirnar frá Diktu voru glæsilegar. Hlakka til að sýna vinum mínum í Landsvirkjun afraksturinn. Þeir verða eflaust öfundsjúkir.
Á gær fluttum við svo sýningarskáp úr Rafheimum, sem var þar í hálfgerðu reiðileysi og komum honum fyrir á 2. hæðinni, þar sem ætlunin er að setja upp tæki frá Raffangaprófun. Það eru magnaðar græjur fyrir tækninörda, sem erfitt er að botna upp né niður í. Sem sagt – safnið verður svalara með hverjum deginum. Það er gaman þegar hlutirnir eru að gerast. (Þangað til reikningarnir berast og fjárhagsáætlunin siglir í strand.)
* * *
Tony Thorpe farinn frá Luton til QPR. Þetta tímabil fokkaðist upp hraðar en í mínum verstu marströðum. Vonandi föllum við ekki…