1. strik ? haldið út í heim

Klukkan fimm að morgni, laugardaginn þrí­tugasta ágúst, skrí­ða Steinunn og Stefán framúr og búa sig undir ferðalagið mikla. Kvöldið áður höfðu bæði tí­nt til vegabréfin sí­n, sem verður að endurnýja á næsta ári. Á passamyndinni sinni er Stefán tiltölulega grannur ungur MR-ingur með velsnyrtar krullur. Steinunn er pattaralegur MH-ingur í­ hippafötum. Fljótt á litið má áætla að Stefán hafi bætt á sig fimmtán kí­lóum á þessum árum, en Steinunn tapað tí­u. Það gerir fimm kí­ló í­ plús, sem sýnir að heimilið að Mánagötu 24 hefur ekki farið varhluta af góðærinu undir stjórn Daví­ðs Oddssonar.

Páll, faðir besta og frægasta bloggarans, mætir á nýja Suzuki-jeppanum sem gömlu hjónin keyptu sér á dögunum. Jeppinn er skýrasta dæmið um að gildismat borgarastéttarinnar sé að ná yfirhöndinni á þeim bænum. Besta og frægasta bloggarann dauðlangar að strí­ða föður sí­num á þessu – spyrja hvenær eigi að ganga í­ Rotary eða byrja í­ golfinu? Stillir sig þó um það, enda þægilegt að fá skutl suður til Keflaví­kur og losna við bakpokaskrí­linn í­ Flugleiðarútunni. Sú var tí­ðin að fjölskylda besta bloggarans átti ekki sjónvarp og þegar loksins var fjárfest í­ slí­kum grip, þá var það notað svart/hví­tt tæki [reyndar fyrir peninga sem þessi sami bloggari vann í­ happadrætti rí­kissjóðs út á einhver rí­kisskuldabréf sem velviljaður ættingi sem ekki skyldi samhengið milli óverðtryggðs sparnaðar og óðaverðbólgu gaf í­ skí­rnargjöf, í­ þeirri von að kosta mætti barnið til náms í­ framtí­ðinni – innskotssetningu lýkur] – helví­tis neyslukapphlaup…

Djöflaeyjan yfirgefin

Nema hvað – Stefán og Steinunn spæna af stað til Keflaví­kur og taka fram úr rútunni á leiðinni. Hah, engar almenningssamgöngur hér! Fyrir vikið er nægur tí­mi í­ Leifsstöð til að virða fyrir sér „andlit Íslands gagnvart umheiminum“ eins og flugstöðin var einhverju sinni nefnd. Stefán hugsar hlýlega til Matta Matt fyrir að hafa afrekað að reisa þetta fallega mannvirki fyrir rétt rúmlega tvöfalda kostnaðaráætlun. Plebbalegt? Neinei…

Meðal bandarí­skra háskólanema mun það þykja hin mesta skemmtun að reyna að troða sem flestum inn í­ litla fólksbí­la. Heimsmetið í­ þessari í­þróttagrein er ví­st einhver fáránlegur fjöldi inn í­ litla Fólksvagen bjöllu. Lí­klega hafa methafarnir vösku æft sig á sætunum í­ flugvél Iceland Express. Stefán gefst fljótlega upp á að berja sig í­ gegnum amerí­skan tæknisögudoðrant eftir Tom Hughes. Steinunn var klókari. Hún tók með sér reyfara. Annars tí­ðindalaust úr háloftunum.

Rúllað í­ gegnum Kastrup. Upp í­ næstu lest og út á aðalbrautarstöðinni. Hótelið Ljónið er á Vesturbrúargötu 30 og því­ í­ röltfæri við brautarstöðina. Steinunn og Stefán ganga beint í­ flasið á skúðgöngu Kristjaní­u-vina. Þeir mótmæla áformum fasistastjórnarinnar í­ Danmörku að loka frí­rí­kinu. Eiga ferðalangarnir ungu að hrí­fast með og halda í­ kröfugöngu með ferðatöskurnar á bakinu? Tja, það kemur mótmælaganga eftir þessa göngu. Betra að tékka sig inn fyrst.

(Aðrir) túristar eru leiðindapakk

Hótelið er fí­nt. Pí­nulí­tið hráslagalegir gangar, en það er miðsvæðis og í­ ódýrari kantinum. Fúlir amerí­skir túristar eru að rí­fast í­ móttökunni þegar Steinunn og Stefán mæta á svæðið. Undra sig á því­ að ekki sé boðið upp á Hilton-herbergi á ódýru gistiheimili. Fyrir vikið tekur þéttvaxna konan í­ afgreiðslunni strax ástfóstri við í­slensku gestina sem virðast ekki ætla að vera með neitt múður. Ekki dregur úr gleði hennar þegar talið berst að Kristjaní­u. Svo virðist sem flestir túristar séu bara komnir til að klappa Hafmeyju-ófétinu við höfnina.

Á hótelherberginu gramsar Stefán í­ töskunni sinni. Bölvar sjálfum sér vel og hressilega fyrir að gleyma myndavélinni heima. Kaupir einnota draslvél frá Kodak. Ekkert ljósmyndafyllerí­ í­ þessari ferð.

Steinunn og Stefán fara í­ langan göngutúr um miðbæinn. Stoppað á hentugum stað í­ bjór og smörrebröd. Við tækifæri mun besti og frægasti bloggarinn láta fara fram rannsókn á því­ hvaða efni það sé í­ danskri lifrarkæfu sem kona hans er svo sólgin í­. Það sem eftir lifir ferðar sí­frar Steinunn reglulega um að hana langi í­ meiri lifrarkæfu. Ætli þetta sé spurning um einhver fágæt prótí­n eða steinefni?

En hvað með Pinochet?

Á Kóngsins-nýjatorgi er búið að setja upp sýningu á vegum ferðamálaráðs Chile. Steinunn og Stefán skoða sýninguna – einkum til að geta stært sig af því­ á bloggsí­ðum sí­num þegar fram lí­ða stundir. Á ljós kemur að í­ Chile eru grí­ðarlegir fjárfestingarmöguleikar fyrir útlenska kapí­talista. Ef góðviljaði ættinginn hefði á sí­num tí­ma haft vit á að leggja skí­rnarpeningana inn á verðtryggðan reikning þá væri besti og frægasti bloggarinn kannski orðinn álfursti í­ Suður-Amerí­ku í­ dag, en hefði að sönnu misst af mörgu því­ sem hæst bar á dagskrá Rí­kissjónvarpsins á árunum 1982-1985.

Steinunn og Stefán taka strikið heim á hótel (no pun intended!) Lesendur þessarar sí­ðu mega giska þrisvar hvort þeirra stoppar við nánast hverja einustu verslun á leiðinni og mátar sólgleraugu, án þess að finna nein sem passa almennilega – á meðan hinu leiðist.

Önkörur við hvert fótmál

Að ráði Þóru systur, sem gjörþekkir Kaupmannahöfn eftir misseris verkfræðiföndur við skólann sem annar hver í­slenskur verkfræðinemi hefur stúderað við, var tyrkneski veitingastaðurinn Ankara á Vesturbrúargötu fyrir valinu sem fyrsti kvöldverðarstaðurinn. Við Vesturbrúargötu eru þrí­r tyrkneskir staðir sem heita þessu sama nafni, þar af gera tveir þeirra kröfu til þess að vera sá tyrkneski veitingastaður á Norðurlöndum sem býr yfir stærsta hlaðborðinu. Hrokafullt? Tja, vonandi byrja veitingamennirnir ekki að blogga, því­ þá gæti nafnbót sumra verið í­ hættu…

Neðsti Ankrara-staðurinn (u.þ.b. nr. 21 eða þar um bil) varð fyrir valinu. Hann er æði. Ódýr matur, gott ví­n og danskættaða magadansmærin var alls ekki eins mikið kitch og búast hefði mátt við. Tyrkir eru að taka yfir Danmörku og gera hana að mun betri stað en fyrr. Íslendinga vantar tilfinnanlega svona 2.000 Tyrki.

Óvæntur svallari

Bjór um daginn, rauðví­n með matnum og í­rskt kaffi á eftir hefði til skamms tí­ma þýtt að besti og frægasti bloggarinn hefði þurft að bera sí­na ektakvinnu á bakinu til sængur. Nú hafa hlutirnir hins vegar breyst, því­ Steinunn er hætt að reykja (7,9,13). Sí­garettubindindið tekur á taugarnar, en hefur hins vegar kallað fram áður óþekkt áfengisþol. Brenniví­nsberserkurinn Steinunn hefur því­ aldrei þessu vant frumkvæðið að því­ að taka stefnuna á barinn fyrir svefninn.

Á hæðinni fyrir neðan Hótel Ljón er einn í­rskur pöbb – eða öllu heldur breskur pöbb sem þykist vera í­rskur vegna þess að hann selur Guinness á krana og á jafn mikið af í­rsku viskýi og skosku. Þessi knæpa á mjög eftir að koma við sögu sí­ðar í­ ferðinni. Íslendingarnir djörfu sitja frameftir nóttu og gerast æ væmnari eftir því­ sem glösunum fjölgar.

Tjaldið fellur, fyrsta þætti lýkur.