Svör eru byrjuð að berast í þungu teiknimyndasögugetrauninni og stigin farin að raðast á menn. Þau atriði sem rétt svör hafa borist við eru skáletruð:
1. Einhverjar fyrstu teiknimyndasögurnar sem birtust í Þjóðviljanum voru um „Kalla klunna“. Undir hvaða nafni er sú persóna betur þekkt í dag?
2. Hvað hétu knattspyrnuteiknimyndasögurnar sem birtust í Vísi og síðar DV?
Rétt svar: Bommi Björn Friðgeir fær 2 stig.
3. Frægar erlendar teiknimyndasögur birtust um skeið í íslensku blaði undir heitinu „Aggi“ – hvað nefndust þær á frummálinu?
4. Hversu mörg börn eiga Lísa og Láki í samnefndum teiknimyndasögum?
Rétt svar: fjögur börn Snæbjörn fær tvö stig.
5. Hvað nefndist sjóræninginn með leppinn í langlífri teiknimyndaræmu í Vísi og síðar DV?
Rétt svar: Krulli Snæbjörn fær tvö stig.
6. Á lokaskeiði Vísis birti blaðið framhaldsteiknimyndasögu sem birtist vikulega upp á eina síðu í hvert skipti. Á sögunni var fylgst með lífi og störfum einnar fjölskyldu, hvað nefndist hún?
Rétt svar: Dallas Snæbjörn fær tvö stig.
7. Teiknimyndasagan um indíánafjölskyldu í Ameríku og kjánaleg uppátæki hennar varð langlíf í íslesnkum dagblöðum. Hún birtist undir tveimur nöfnum – hverjum?
8. Á fyrstu blöðum DV voru þrjár teiknimyndasögur sem voru einungis einn myndarammi hver. Hverjar voru þær?
Rétt svar: Bella, Lísa og Láki & Vesalings Emma Snæbjörn fær tvö stig.
… og svuntuþeysir er að sjálfsögðu synthesizer.