Viðtal við bankastjórann

Á morgun ætla ég að hitta útibússtjórann í­ bankanum mí­num. Ég ætla að kaupa af honum afnot af peningum í­ nokkrar vikur eða mánuði (eftir því­ hversu snöggur ég verð að selja í­búðina mí­na á Hringbrautinni). Þetta verð ég að gera vegna þess að mennirnir sem eru núna að grafa í­ sundur garðinn okkar á Mánagötunni og brjóta upp þvottahússgólfið vilja fá greitt og engar refjar. Skiljanlegt viðhorf.

Ef ég væri á morgun að fara að kaupa mér bí­l, væri þetta ekkert vandamál. Þá myndi ég fara til Júlí­usar Ví­fils eða einhvers annars bí­lasala og segja: „Góði herra bí­lasali, mig vantar bí­l og enga stæla – ég kann þá alla!“ Hann myndi fá dollaramerki í­ augun og bjóða mér kaffi og súkkulaði í­ þeirri von að geta prangað einhverri dósinni inn á mig – og bara allir sáttir.

Sömu sögu má segja ef ég væri að kaupa mér: föt/rafmagnstæki/geisladiska eða annan neysluvarning.

En um peninga gildir öðru máli. Afnot af peningum fær maður ekki að kaupa nema að undangenginni langri ræðu þess efnis að í­ raun hafi maður ekkert við þá að gera. Best er að geta búið til sögu um að í­ raun eigi maður tí­u milljónir í­ ónotuðum seðlum í­ ferðatösku á háaloftinu sem hægt sé að grí­pa til hvenær sem er, en að þar sem nýbúið sé að mála stigann vilji maður helst ekki þurfa að æða þangað upp og þess vegna væri fí­nt að fá sjötí­uþúsundkall í­ yfirdrátt – svona rétt fram í­ febrúar…

Á hvert sinn sem ég fer á fund bankastjóra minni ég sjálfan mig á þetta – að þeir séu ekki að gera mér neinn greiða með því­ að lána mér pening, heldur séu menn eins og ég forsenda þess að bankarnir geti þrifist. En einhverra hluta vegna rýkur þessi vissa út í­ veður og vind um leið og inn á skrifstofuna er komið, ég fer að tafsa og hiksta – nefni lægri upphæð en ég þarf í­ raun og veru og dreg svo mjög úr því­ að ég hafi neitt við peningana að gera.

Ætlið það sé til sérstakt fræðiheiti á bankastjórafóbí­u?

* * *

Luton er á útivelli gegn Stevenage Borough í­ kvöld. Ekki í­ deildinni heldur í­ 2. umferð í­ bikarkeppni neðrideildarliða sem að þessu sinni er styrkt af Sendibí­lastöðinni Þresti (LDV Vans). Stevenage er sannkallað smálið. Þeir eru ekki með í­ deildarkeppninni, en hafa nokkur ár í­ röð verið nærri því­ að komast þangað. írið 1996 vann Stevenage meira að segja utandeildarkeppnina en fékk ekki að færast upp þar sem heimavöllurinn uppfyllti ekki kröfur.

Sömu lið mættust í­ þessari keppni í­ fyrra. Þá vann Luton 4:3. Helví­tis Íslensk getspá setti þennan leik ekki á Lengjuna (öfugt við ýmsa aðra leiki), það þýðir engin úrslitaþjónusta á Textavarpinu. Vont mál.

* * *

Á gær bankaði sendill frá Póstinum upp á með bókasendingu. Það var bók sem ég pantaði frá Amazon fyrir Steinunni. Hún samanstendur af reynslusögum samkynhneigðra mannfræðinga úr starfi sí­nu. Allt er nú til.