Ástríksþraut

Eins og allir vita má Steinrí­kur ekki drekka kjarnadrykk, því­ hann datt ofan í­ pottinn þegar hann var barn – og óttast er að einn sopi í­ viðbót kynni að rí­ða honum að fullu.

Einu sinni hefur það þó gerst að Sjóðrí­kur seiðkarl hefur gert undantekningu frá þessari reglu og leyft Steinrí­ki að fá agnarlí­tinn dropa. Á hvaða sögu gerðist það?

* * *

Luton vann Stevenage með marki á lokamí­nútunni og er komið áfram í­ sendibí­labikarnum. Get ekki sagt að ég sé upprifinn. – Samt skemmtilegt að skora einu sinni undir lokin í­ stað þess að fá á sig mark þá…

QPR vann Kidderminster í­ sí­num leik. Luton-QPR er augljóslega óskaviðureignin í­ næstu umferð!

* * *

Á gær lenti ég á fundi ásamt Þorvaldi Þorvaldssyni, trésmið og sósí­alista. Þar komst ég að því­ að hann er eini maðurinn á Íslandi sem ekki getur hermt eftir Ólafi Ragnari. Það fannst mér merkilegt.

* * *

Bankastjóraferðin sem boðuð var í­ gær verður að bí­ða til morguns. Grunnskóli hersins kemur annan daginn í­ röð og búið er að bóka fund með mér og einhverjum módelsmið, sem væntanlega ætlar að reyna að selja safninu þjónustu sí­na. Módelsmiðir eru viðsjárverðir. Þeir lí­ta á módelin sem börnin sí­n og koma sí­fellt í­ heimsókn til að sjá hvernig þeim reiðir af og verða foxillir ef lí­könunum er ekki nægur sómi sýndur.

* * *

Er ég eini maðurinn sem farinn er að telja mí­núturnar í­ nýtt Visa-tí­mabil?