„Skítugir“ peningar

Úgg… Skaust í­ Endurvinnsluna í­ hádeginu með flöskur og dósir sem safnast höfðu fyrir í­ geymslunni á Hringbrautinni. Það hefði ég betur látið ógert.

Fékk að sönnu 1.409 krónur fyrir dótið, en er núna útbí­aður af kók, bjór og ví­nslettum. Þessu fylgir tilheyrandi ólykt.

Skilagjald á drykkjarumbúðum er of lágt! Það borgar sig ekki að safna þessu dóti saman, fylla allar geymslur, taka svo ærinn tí­ma í­ að skila þessu inn og fara grútskí­tugur út úr því­… – Hins vegar man ég eftir því­ frá sumrinu mí­nu í­ öskunni hvað maður bölvaði liðinu sem henti glerinu og plastflöskunum þannig að maður lætur sig hafa það.

* * *

Komst til bankastjórans eftir allt saman. Hélt kúlinu og hann ætlar að láta mig hafa peninga eins og ég get borið. Gott, gott.