Hvað gerir Gísli nú?

Þriðji þátturinn af „æsilegum ævintýrum“ Gí­sla Pálssonar og Ara Trausta var í­ gær. Fyrstu tveir þættirnir voru helgaðir því­ að sýna Gí­sla raka sig og sofa í­ flugvélum – þannig að flestir áhorfendur voru lí­klega búnir að uppgötva að ekki væri stórtí­ðinda að vænta í­ þriðja þættinum, enda reyndist það raunin.

Á ljós hefur komið að asnalega tilgátan um að norræna byggðin á Grænlandi hafi farið í­ eyði vegna þess að í­búarnir hafi flutt til Norðurpólsins reyndist þrugl. Á staðinn eru Ari Trausti og félagar farnir að daðra við hugmyndina um að þeir hafi flutt til Mæjorka. Það er frábærlega vonbd hugmynd sem væntanlega mun þó kalla á margar sjónvarpsserí­ur af Gí­sla að raka sig og borða morgunmat á flugvöllum…

* * *

Tony Blair fékk hjartaáfall…

…en slapp.

– Djö, það er greinilega mánudagur!