Besti og frægasti bloggarinn hefur löngum verið talinn brautryðjandi. Það kemur þó nokkuð á óvart að uppgötva að ekki fyrr hafði íbúðin á Hringbrautinni verið sett á sölulista en nágrannarnir tóku að gera slíkt hið sama.
Fasteignasalan Valhöll verðlagði íbúðina á 9,5 milljónir. Fyrir það fást 49 fermetrar á besta stað í bænum (svalir til suðurs, gott húsfélag) og stæði í bílskýli. Þá eru sallafínar hvítar flísar á mestallri íbúðinni en það þykir mikill kostur. (Myndir af eigninni má sjá á heimasíðu Valhallar.)
Á ljósi þessa er áhugavert að sjá verðið sem nágrannarnir hyggjast fá fyrir sína íbúð – sem einmitt var auglýst sem „eign vikunnar“ af fasteignasölunni Hóli. Sú íbúð er jafnstór (raunar eins í laginu), en hefur að sönnu verið endurnýjuð af myndarskap. Þar er nýtt parkett, ný eldhúsinnrétting og nýtt baðherbergi. Eignina má sjá hér. Og hvað eiga svo herlegheitin að kosta? – Jú, 11,9 milljónir.
Þabbaraþabb!