Aðalfundur SHA – fyrsta áminning

Þegar Samtök herstöðvaandstæðinga héldu nýliðafundinn á miðvikudaginn var, kvörtuðu nokkrir lesendur þessarar sí­ðu yfir að auglýsingarnar hefðu farið fram hjá þeim. Til að það endurtaki sig ekki ætla ég að plögga landsráðstefnuna í­ tí­ma.

Hún verður sem sagt á laugardaginn kemur, í­ félagsheimili eldri borgara á Vesturgötu 7. Fyrir hádegi eru hefðbundin aðalfundarstörf – sem eru fí­n fyrir þá sem gaman hafa að slí­ku.

Aðalmálið er svo eftir hádegi, frá 13-15. Þá verður stutt og lí­flegt málþing um hermálið og þó einkum sí­ðastliðið sumar, þar sem herinn komst óvænt í­ umræðuna.

Þar munu tala: prófessor Gunnar Karlsson, Steingrí­mur Ólafsson og Halla Gunnarsdóttir – sem sagt, bloggaravæn dagskrá…

Nánar á Friðarvefnum