Skúli Sigurðsson dregur í efa að ég sé nægilega heiðarlegur í blogginu mínu. Hefur mig grunaðan um að segja bara hetjusögur, en þegja þegar illa gengur. Að því tilefni hvatti hann mig til að blogga um það hvernig leikir dagsins í föstudagsfótboltanum færu – líka ef ég myndi enda í tapliðinu.
Við þessu er sjálfsagt að verða. Þrír leikir voru leiknir. Tveir töpuðust og einn vannst. Sjálfur var ég slappur í leiknum og nennti lítið að hlaupa í vörninni.
* * *
Listi Rolling Stone Magazine yfir bestu plötur allra tíma var ömurlegur. Fjórar Bítlaplötur á topp 10 er út úr öllu korti. Og hvernig er hægt að sleppa t.d. Never Mind the Bollocks af svona lista? London Calling sleppur inn á topp 10, annað er óttalegt prump.
Er Paul McCartney mesti skúnkur í heimi? Ringo var eini góði Bítillinn.