Þættirnir um Andy Richter verða betri og betri. Þátturinn í gær var snilld. Ég minnist þess ekki að hafa hlegið jafn mikið í lengri tími og að lokabrandaranum, þar sem Irina, rússneska kærasta Andy Richters – sem er full ranghugmynda um dýraríkið og liggur ekki á kenningum sínum – reyndi að dáleiða ljón (sem hún áleit risastóran hund og grasbít) með salami-pylsu. Er ég vond manneskja? Kannski.
Andy Richter-þættirnir eru bestu gamanþættirnir á Sjónvarpinu um þessar mundir. Ég trúi varla öðru en að Sjónvarpið muni taka aðra þáttaröðina af The Office til sýninga. Þá væri sterkur leikur að sýna skosku grínþættina Chewin´ the Fat – það eru fyndnir þættir.
Annars þarf enga sjónvarpsþætti til að kitla í manni hláturtaugarnar. Ef maður vill virkilega komast í hláturskast, þá er nóg að grípa í tiltekið eintak af Sögu, tímariti Sögufélags og leiklesa ákveðna „svargrein“ sem þar birtist fyrir nokkrum árum síðan. Sá húmor er því miður nokkuð stéttbundinn. Ég hef lent í að lesa þetta í partýi þar sem voru þrír sagnfræðingar og álíka margir óinnvígðir. Við sagnfræðingarnir lágum á gólfinu og áttum erfitt með að anda fyrir hláturkviðunum. Hinum stökk varla bros.
Svona getur húmor verið flókinn.
* * *
Á gær samdi ég rosalega góða spurningu fyrir útvarpskeppnina eftir áramót. Verst að það á örugglega ekki eftir að koma rétt svar við henni. Þetta er tilvistarvandi spurningakeppnisdómarans í hnotskurn.
* * *
Gullkorn frá George Bush Bandaríkjaforseta: „The problem with the French is that they don’t have a word for entrepreneur“
* * *
Síðdegis verður dregið í undankeppni HM í fótbolta. Plebbarnir bíða eflaust spenntir eftir að sjá hvort Ísland lendi með Englendingum, Dönum og Frökkum eða Azerum, Moldóvum, Hvít-Rússum og Kazhakstan. Besti bloggarinn mun hins vegar fylgjast með framvindu mála í Afríku og Asíu. Eru Thailendingar að fara að springa út? Munu Úsbekar ná aftur fyrri styrk? – Svona hluti er gott að vita.
* * *
Verð veislustjóri á rannsóknaræfingu Fél. ísl. fræða, Sagnfræðingafélagsins og RA annað kvöld. Veit ekkert hvað ég á að gera eða segja. Tek á móti snjöllum bröndurum í tölvupósti…