Það er alltaf fagnaðarefni þegar opnaður er almennilegur bar í Reykjavík. Þótt staðirnir séu margir, þá eru flestir ákaflega rýrir í roðinu.
Fór í göngutúr með karli föður mínum í gærkvöld. Stoppuðum í einn bjór í miðbænum. Fyrir valinu varð hollenskur pöbb í Hafnarstrætinu, þar sem áður var rekinn strípiklúbbur.
Þetta er greinilega hinn besti staður. Bjórúrvalið til hreinnar fyrirmyndar, raunar svo gott að galli var að ekki var hægt að skoða það á bjórseðli. Sérstök ástæða er til að hrósa veitingamanninum fyrir að afgreiða bjórinn í „réttum glösum“. Á Íslandi er það ljótur ósiður að afgreiða bjór í hvaða glasi sem er, jafnvel vitlaust merktu.
* * *
Tók líka eftir því á för okkar feðga um Hafnarstrætið að verið er að opna nýtt kaffihús eða bar í húsnæðinu þar sem áður var spilasalur, við hlið gömlu Nonnabita. Þar er þessi fíni rampur inn í húsið og þar með eitthvert besta hjólastólaaðgengi á knæpu í miðbænum. Það er raunar þyngra en tárum taki hversu léleg ferlimálin eru á veitingastöðum almennt.