Stalín og ljósaperan

Tveir hressir hópar af tí­undubekkingum úr einum Grafarvogsskólanum heimsóttu Rafheima í­ morgun. Góðir hópar og áhugasamir, en ekki eru þau með ævisögur uppfinningamanna vel á hreinu.

Spurði þau hver hefði fundið upp ljósaperuna. Fékk ýmsar góðar tilgátur:

i) Benjamí­n Framklí­n
ii) Þessi sem þú varst að tala um – þarna Volta
iii) Hét hann ekki Ampére?
iv) Einstein
v) Stalí­n!
vi) Newton
vii) Armstrong

Eftir aukaví­sbendinguna: hann var bandarí­skur og fyrsti stafurinn er „E“ –

viii) Edward Newton
ix) Eisenhower

Hann hét Thomas að fornafni…

x) Thomas Everton?
xi) …nei, Thomas Edison!

– Æ, það er nú ekki hægt annað en að skemmta sér aðeins yfir þessu…