Bíllinn minn…

…er í­ lamasessi. Það er nokkuð langt sí­ðan Blái draumurinn var sí­ðast keyrður, í­ það minnsta vika. Fyrst hélt ég að hann væri bara bensí­nlaus og bætti á hann einum brúsa. Það virkaði ekki.

Því­ næst veðjaði ég á að hann þyrfti start, svo við hnupluðum startköplum hjá gömlu. Það virkaði ekki heldur.

Nú giskar Palli á að startarinn sé í­ lamasessi og mælir með því­ að ég sæki sleggju og láti höggin dynja á vélinni. Ekki lí­st mér alltof vel á það, en hef yfirleitt látið Palla segja mér fyrir verkum í­ bí­lamálum og mun því­ grí­pa til þessa ráðs á morgun. Vonandi verður það ekki hans bani…

* * *

Fórum á laugardag í­ veislu sem Orkuveitan hélt starfsmönnum. Maturinn var æði. Maggi kokkur er snillingur. Ví­nið var ekki skorið við nögl. Enduðum heima í­ stofu á Mánagötunni og fengum okkur meiri bjór og kaffi ásamt Helgu. Nenntum ekki í­ bæinn með henni og sofnuðum fyrir allar aldir. Það er vandamálið við að byrja að sötra svona snemma.

* * *

Afkastamikil helgi varðandi GB. Fékk Palla til að hjálpa mér varðandi hljóðdæmin í­ útvarpshluta keppninnar. Þau eru nú öll tilbúin, enda varla seinna vænna.

Sjálf keppnin byrjar á fimmtudagskvöldið. Þá keppa: írmúli og Garðabær; Menntaskólinn á Akureyri og Egilsstaðir & Vestmannaeyjar og Hamrahlí­ð. Hvort skyldi ég fá á mig skammir fyrir að þetta verði of létt eða of þungt? Það verður spennandi að sjá…