Veðráttan er strax farin að hafa áhrif á spurningakeppnina. Þótt enn sé bara þriðjudagur, þykir sýnt að litlar líkur séu á að flugfært verði frá Eyjum á fimmtudag. Keppni Framhaldsskólans í Vestmannaeyjum og MH hefur því verið frestað til föstudagsins 23. jan.
Þessum tíðindum kann ég raunar ekki illa. Það verður ágætt að byrja bara rólega á tveimur viðureignum á meðan við Steinunn Vala stigavörður stillum okkur saman.
* * *
Haldið endilega áfram að senda ábendingar um hvað geti amað að bílnum mínum. Tek allar uppástungur til skoðunar…