Selt

Jæja, í­búðin seldist loksins í­ gær. Þá er þeim kafla í­ lí­fi mí­nu lokið – tja, þó með þeirri undantekningu að enn á eg eftiri að innheimta vangoldna leigu frá fyrrverandi leigjanda – án þess að hafa mikla trú á að neitt komi út úr því­.

* * *

Fyrirlestur Unnar Birnu á miðvikudaginn var mjög áhugaverður. Vilmundur Jónsson var greinilega fantagóður penni og forvitnilegt var að heyra fyrirlesarann lýsa því­ að erfiðara hafi verið að lesa sumar hafnanirnar um ófrjósemisaðgerðir en um málin sem fóru í­ gegn. Á það minnsta er saga okkar í­ þessum málum mun skárri en t.d. Sví­a.

* * *

Framarar komnir í­ bikarúrslitin í­ handboltanum. Þangað verður maður að mæta. Laugardagurinn 28. hefur verið tekinn frá.

* * *

Orkuveitan þrætir fyrir að neitt sé að spennunni. Urr!

* * *

Norðfirðingagleði á Hótel Íslandi í­ kvöld. Það þarf varla að velta því­ lengi fyrir sér um hvað verður einkum talað…