Flottur til fara

Aldrei fór það svo að börnin í­ spurningakeppninni byrjuðu ekki að bera á mann mútur. Reyndar eiga Vestlendingar margt ólært í­ mútufræðunum, því­ þau komu ekki færandi hendi með gjafir til mí­n, Loga og Steinunnar Völu fyrr en EFTIR keppnina. Þá var náttúrlega full seint í­ rassinn gripið að ætla að lauma til þeirra spurningunum.

En gjafirnar voru sallafí­nar. Um er að ræða Henson-treyjur sem búið er að merkja með nöfnum okkar og merki eftirlætisliðanna í­ enska boltanum. Ég fékk Luton, Logi Man. Utd. og Steinunn Vala Liverpool. Þetta var svo góður klæðnaður að ég er strax mættur í­ þessu í­ vinnuna.

Vestlendingarnir voru annars eiturhressir og höfðu styrkt sig mjög frá því­ í­ útvarpinu. Æfingar skila árangri. Verslingar voru öflugir. Mættu þó hrópa minna í­ hraðaspurningum. Borgarholt og MK mætast svo í­ lokaviðureign fjórðungsúrslita.

Óttar þeirra Kolbeins og Svövu fékk að semja eina hraðaspurningu og er ví­st í­ skýjunum núna. Hann er mjög efnilegt Gettu betur-nörd. Ætli það gildi ekki það sama um GB-þjálfun og fimleikana í­ Rúmení­u – að ná krökkunum áður en þau verða sex ára…

* * *

Les á blogginu hennar Sonju hún sé á förum. Það eru ill tí­ðindi, enda erfitt að hugsa sér betri nágranna. Og aldrei héldum við svo partýið stóra!

* * *

Guðjón Þórðarson rekinn frá Barnsley – og þeir sem eru að fara að spila við Luton á laugardaginn. Ekki gott. Það er ansi algengt að lið vinni fyrsta leik undir nýjum stjóra.

* * *

Já og méðan ég man…

Á keppninni í­ gær var ég með ví­sbendingaspurningu um Votta Jehóva. Daginn fyrir keppnina kom ég að tölvunni minni hér í­ vinnunni og sá að Varðturninn lá á lyklaborðinu. Vottarnir höfðu droppað við og ákveðið að skilja eftir 1-2 blöð. – Þeir skyldu þó ekki vera í­ betra sambandi en við hin eftir allt saman…