Hahaha… spurningahöfundurinn Stefán fékk uppreisn æru í dag.
Á Rafheima komu tíu ára börn úr Kársnesskóla. Þar á meðal var stelpa sem var algjör snillingur. Hún var frábærlega vel að sér, þekkti uppfinningamenn á mynd vissi allskonar viðbótarupplýsingar og var almennt með eðlisfræðina og söguna á hreinu.
Undir lok heimsóknarinnar vatt hún sér að mér og spurði: „Heyrðu, hvernig er það – nifteindastjörnur, eru þær gerðar úr nifteindum?“ Spurningin kom mér gjörsamlega í opna skjöldu og ég tafsaði eitthvað. Þá bætti hún við: „Nifteindastjörnur eru rosalega skemmtilegar. Þær segja dúnk-dúnk-dúnk. Einu sinni héldu menn að hljóðið í þeim kæmi frá geimverum…“
Eftir að hafa hlustað á fólk um allar trissur væla og skæla yfir vísbendingaspurningunni minni um nifteindastjörnurnar í keppni FG og Hraðbrautar, þá var frábært að hitta tíu ára krakka sem hefði fengið tvö eða þrjú stig í spurningunni. – Reyndar alveg fáránlega kláran tíu ára krakka, en engu að síður…