Hver kann á húsnæðiskerfið?

Jæja, er einhver góðhjörtuð sál þarna úti sem getur leiðbeint besta og frægasta bloggaranum í­ rangölum húsnæðiskerfisins?

Staðan er þessi:

* Besti bloggarinn seldi í­búð á dögunum, enda löngu fluttur inn á sí­na ektakvinnu.

* Fyrir liggur að við ætlum að kaupa í­búðina á Mánagötunni af tengdapabba innan tí­ðar. Hvort það gerist í­ næsta mánuði eða eftir hálft ár er ekki lykilatriði, í­ það minnsta er írni ekkert að reka á eftir okkur.

* Nú ætlar rí­kisstjórnin að stokka upp húsnæðiskerfið. Ræðir jafnvel um að afleggja húsbréfakerfið í­ júlí­. Ráðherra segir að breytingin verði kaupendum hagstæð – en það segja ráðherrar svo sem alltaf og erfitt að vita hverju á að trúa.

– Spurningin er því­ þessi:

Eiga Stefán og Steinunn að drí­fa sig í­ að ganga frá kaupunum áður en breytingin gengur í­ gegn?

Eiga Stefán og Steinunn að bí­ða þar til í­ haust til að sleppa inn í­ nýja kerfið?

Eða skiptir þetta e.t.v. engu máli?

Spyr sá sem ekki veit.