Fór í gær á harðkjarnatónleika í Tónlistarþróunarmiðstöðinni ásamt Palla og Þór. Verið var að safna fyrir hljóðkerfi TÞM. Og hvílíkt rokk!
Sá raunar bara eitt bandið almennilega. Það var Changer, sem eru þeir þéttustu í bransanum. Uppgötvaði alltof seint að núna mega rokkarar mæta með eyrnatappa. Svölustu unglingarnir voru með gula tappa í eyrunum og slömmuðu í takt við tónlistina. Sjálfur var ég óvarinn og það söng í innra eyranu í klukkutíma á eftir. Óttaðist á tímabili að ég þyrfti að láta græða í mig nýtt ístað.
Harðkjarnasenan er heillandi fyrirbæri. Held að þetta sé heilbrigðasta tónlistin sem er í gangi núna. Þarna mætti fólk klukkan sjö að rokka og ég sá ekki svo mikið sem eina bjórflösku á lofti allt kvöldið. Ekki spillir fyrir að flestar þessar sveitir eru með pólitíkina alveg á hreinu.
* * *
Heimaleikur gegn Blackpool hjá mínum mönnum í dag. Eini leikurinn sem ég hef séð með Luton á Kenilworth Road var einmitt gegn Blackpool. Við unnum 1:0.
* * *
Ó hvað ég verð að taka undir með þessum bloggara. Mistök við tökur á grínþáttum eru einfaldlega ekki fyndin. Eða – úr því að það er svona sniðugt að sjá leikara springa úr hlátri í miðri upptöku, af hverju var þá verið að klippa það út fyrir það fyrsta?