Besti bloggarinn er skelfilega raddlaus í dag. Viský-röddin sjaldan verið verri.
ístæðan er einföld: hljómsveitaræfing.
Pönkhljómsveitin Tony Blair blés til æfingar í gær. Besti bloggarinn kann ekki á hljóðfæri og var því skipaður söngvari. Raunar má deila um hvort hugtakið „söngur“ lýsi vel þessum verknaði – öskur væri nær lagi, en þetta er jú pönkhljómsveit.
Auðvitað er það hlálegt að vera 28 ára gamall að byrja í sinni fyrstu pönkhljómsveit – en á hitt ber að líta að það væri ennþá hallærislegra að neita að vera með bara vegna þess að maður sé komplexeraður yfir að vera miðaldra…
Pönkið lifir sem sagt góðu lífi. Tony Blair verður stærri en Bítlarnir – eða í það minnsta skemmtilegri.