Keppni gærkvöldsins var alvöru sjónvarpsefni. Það eru ekki margir sjónvarpsþættir sem rata á útsíður dagblaða eins og sjá mátti á Fréttablaðinu og Mogganum í dag. Svo sem ekki við öðru að búast.
Lið Borgó og MR stóðu sig frábærlega. Það var líka aðdáunarvert að sjá viðbrögð MR-liðsins við tapinu. Eins og sjónvarpsáhorfendur gátu séð klöppuðu þeir fyrir andstæðingunum, óskuðu þeim velgengni og liðin féllust svo í faðma í lok útsendingarinnar.
Þetta var ekki einhver gríma sem MR-ingarnir settu upp fyrir sjónvarpsmyndavélarnar, því eftir útsendinguna stóðu liðin heillengi og spjölluðu saman. Strákarnir og þjálfarar þeirra eru nefnilega góðir vinir og Borghyltingar og MR-ingar hafa víst skemmt sér saman í partýunum eftir úrslitaleiki keppninnar frá MR-Borgó úrslitunum um árið.
Þessi stemning heyrir til undantekninga í keppninni. Yfirleitt láta liðin sér nægja að spjalla lítillega saman á keppnisstað og stundum er mikil spenna í loftinu milli liða, jafnvel svo neistar á milli.
Settist niður á kaffihúsi í Smáralindinni eftir keppnina til að róa mig niður með einum bjór. Borgarholtsþjálfararnir Páll og Sæmundur gengu framhjá ásamt fríðu föruneyti og fengu sér sæti hjá mér. Við enduðum á að sitja þarna í einn og hálfan tíma og skiptast á grobbsögum úr Gettu betur. Rosalega held ég að fólkinu í kringum okkur hafi þótt við skúnkalegir að sitja þarna og tala þindarlaust um einhvern spurningaleik…
Sé á bloggsíðum hinna og þessara að úrslitin hafa verið farin að leka út fyrir útsendingu. Auðvitað er það kjánalegt að menn geti ekki stillt sig um að segja úrslitin fyrr en eftir að keppnin er farin í loftið – hins vegar myndi ég aldrei taka sénsinn á að vera að skoða spjallsíður eða bloggsíður manna sem eru nátengdir keppnisliðunum þessa örfáu klukkutíma sem líða milli upptöku og útsendingar.