Reiðhjóladrottningin öll

Jæja, Júlí­ana fyrrum Hollandsdrottning, dó um helgina. 94 ára. Merkilegt hvað þessar evrópsku drottningar reynast langlí­far. Hóglí­fið nær ekki að leggja þær jafn snemma í­ gröfina og karlana.

Júlí­ana gaf tóninn fyrir skandinaví­sku/benelúx-uppskriftina að kóngafólki sem fer sinna ferða hjólandi og er við alþýðuskap. Það er afleitt að kerlingunni skuli hafa dottið þetta í­ hug, því­ ef Belgar, Hollendingar og Norðurlandabúar hefðu mátt búa við fúla og uppskrúfaða kónga er dagljóst að búið væri að stofna lýðveldi í­ öllum rí­kjunum.

Ef ég byggi í­ konungsrí­ki væri ég gallharður lýðveldissinni. Á sumum þessara samfélaga væri maður litinn meira hornauga fyrir að heimta afnám konungsveldisins en fyrir að krefjast stofnun í­slamsks bókstafstrúarrí­kis.