Á kvöld, fyrir pönktónleikana sem hann Valur í Ríkinu var svo góður að leyfa Tony Blair að spila á, er stefnan tekin á hverfisráðsfund að Kjarvalsstöðum.
Haag? Kynni einhver að segja. Hverfis-hvað? Og hvers vegna að fórna sjónvarpsglápi fyrir einhvern grenndarkynningarfund, þar sem fjallað verður um breytt strætókerfi – við sem erum tveggja manna fjölskylda á jafnmörgum bílum…
Skýringin er sú að Steinunn var fyrir skömmu kjörin varafulltrúi í hverfisráði Hlíða fyrir hönd R-listans. íbyrgir varamenn þurfa vitaskuld að setja sig inn í málefni hverfisins, þar með talin strætómálin.
Ekki get ég nú samt sagt að við finnum til mikillar hverfiskenndar. Held að flestir flokki Norðurmýrina frekar til hverfisins fyrir ofan Snorrabrautina. Þótt Snorrabrautin sé meiri umferðargata en Rauðarárstígurinn, þá markar síðarnefnda gatan skarpari skil, enda halda flestir að við búum í póstnúmeri 101 en ekki 105.
En Reykjavíkurborg hefur ákveðið að við eigum að líta á okkur sem íbúa Hlíðahverfis en ekki miðbæjarins og að málefni Nauthólsvíkur og Fossvogskirkjugarðs eigi að hvíla þyngra á okkur en Austurbæjarskólinn og Sundhöllin. Þá verður bara svo að vera. Vonandi fer ekki allur tíminn í karp um strætótengingu við Valssvæðið – þá fer ég á barinn.