Það heldur áfram að síga á ógæfuhliðina í skiptum mínum við Byko.
Við Steinunn töldum okkur stálheppin að geta fengið heildarlausn á einum stað og létum gera okkur tilboð í allt draslið í baðherbergið.
Flísahugmyndin var fljótlega skotin niður, eins og lesendur þessarar síðu hafa væntanlega fylgst með – þannig að ekki kaupum við gólf- og veggefnið frá Byko.
Þessu næst kom í ljós að starfsmaður Byko hafði skrifað upp vitlaus vörunúmer, þannig að tilboðið var gallað. Sem betur fer uppgötvuðum við það þó í tíma fyrir hreina tilviljun.
Þá var upplýst að afhendingarfresturinn á innréttingunni er lengri en rætt hafði verið um. Spurning hvort við reddum henni ekki annars staðar þess í stað.
Og nú síðast kom í ljós að klósettið sem starfsmaður Byko reyndi að selja okkur gengur engan veginn nema með stórframkvæmdum. Þetta er farið að vera pínulítið pirrandi.