Ríkur eða feigur?

Kom í­ vinnuna úr hádegismat í­ lí­tilli matstofu á írmúlanum.

Þar beið mí­n ómerkt hví­tt umslag. Á umslaginu var lí­till plastpoki. Hann er fullur af einhverju moldarkenndu brúnu efni. Engin skýring fylgir með.

Ég tel tvær skýringar lí­klegastar. Pokinn er fullur af…

i) …mold með miltisbrandi. Þá verð ég dauður fyrir kvöldmat.

ii) …afgönskum skúnk, sem ég get selt fyrir MILLJÓNIR!!!

Hvort á ég að bruna á Borgarspí­talann og heimta fúkkalyf eða niður á höfn og leita að grænlenskum sjómönnum?