Mættur á mölina eftir gott ferðalag. Kannski meira um það seinna.
Nú eru fengin úrslit úr fjórum viðureignum til viðbótar í þjóðarsjoppukeppninni CHOPIN 2004. Þau eru sem hér segir:
Þéttbýlisflokkur:
BSÁ 30 – írnagarður 18
London 17 – Draumurinn 21
Þjóðvegaflokkur:
Hlíðarendi 18 – Víkurskáli 25
Borgarnes 31 – Essó-skálinn Blönduósi 15
Eru þá eftir tvær viðureignir í hvorum flokki, uns röðin kemur að fjórðungsúrslitum. Þær eru sem hér segir:
Þéttbýlisflokkur
* Brynja, Akureyri gegn Ríkinu, Snorrabraut. Hér eigast við frumkvöðlar á sviði ísmenningar annars vegar en vídeómenningar hins vegar. Eflaust spennandi keppni.
* James Bönd, skipholti gegn Gerplu, Hofsvallagötu. Sjoppan með aulabrandanafnið keppir við lottó-sjoppu Íslands. Kannski ekki stórleikur umferðarinnar, en áhugaverður engu að síður
Þjóðvegaflokkur
* Sjoppan í Skaftafelli gegn söluskálanum í Þrastarlundi. Fyrir útivistarfríkin. Náttúrufegurð gæti komið inn í spilið hérna.
* Djúpmannabúð gegn Kaupfélagi Strandamanna, Drangsnesi. Ekki stærstu fiskarnir í búrinu, en eiga sér eflaust báðar dyggan hóp aðdáenda.
Jamm.
* * *
e.s. Luton tapaði 0:4 fyrir Ajax. Ekki verður á allt kosið.