Landafræði 103

Félag landfræðikennara hlýtur að hafa borgað Samúel Erni fyrir útsendingu gærdagsins frá setningu Ólympí­uleikanna. Hví­lí­k og önnur eins leiðindi!

„Hér sjáum við …(nafn á landi)… Þar búa x margar milljónir í­búa og það er x margir ferkí­lómetrar.“

Stundum fékk höfuðborgin að fljóta með.

Hvernig dettur mönnum í­ hug að þetta sé gott sjónvarp?

* * *

Fór í­ kvöldmat hjá tengdó í­ gær. Hún býr í­ Kjarrhólmanum, nánar tiltekið í­ Lönguvitlausu – fáránlega löngu blokkinni yfir Fossvogsdalnum. Fylgdist þar með leik Ví­kings og Kelfaví­kur, enda varla annað hægt þar sem öskrin frá vellinum voru slí­k.

Óskaplegt klúður er það að tapa 2:3 eftir að komast 2:0 yfir. Þetta er feigðarlegt.

* * *

Ungu Framsóknarmennirnir voru vinalegir. Á ljós kom samt að ég ofmat hversu mikinn tí­ma ég hefði fyrir framsöguna. Umræðurnar voru miklu betri.

Ekki held ég samt að ég hafi átt mörg hugsjónasystkini á staðnum.

* * *

Sjoppukeppnin:

Hallinn vann Skaraskúr 13:6.

Enn er beðið úrslita í­ keppni Vikivaka og James Banda. Þar er staðan 8:5.

* * *

Sit einn í­ vinnunni. Hingað kemur enginn í­ þessu veðri og tölvupikkles kemur í­ veg fyrir að ég geti unnið neitt af viti. Blogga kannski aftur þegar úrslitin hjá Luton liggja fyrir.