Lúðan í mötuneyti Orkuveitunnar (sem heitir reyndar ekki mötuneyti heldur „matstofa“) var hnossgæti. Lúða er besti fiskur sem til er. Hún er hins vegar sárasjaldan á boðstólum á Mánagötu, enda deilir Steinunn ekki dálæti mínu á feitum fiski.
Á leiðinni skoðaði ég gymið sem senn opnar í höfuðstöðvum fyrirtækisins. Þar verður glæsileg aðstaða. Held ég haldi mig þó við sundlaugina í Kópavogi enn um hríð.
* * *
Er að spá í að skella mér á opnun Þjóðminjasafnsins á eftir – þ.e. ef mér hefur ekki tekist að glutra niður boðskortinu. Þar verða margar ræður og leiðinlegar. Vonandi góðar snittur.
* * *
Þjóðarsjoppukeppnin heldur áfram. Baula vann Fjallakaffi og mun því mæta Staðarskála í úrslitum sem hefjast senn.
Á þéttbýlisflokki standa ennþá yfir tvær æsispennandi viðureignir.
Hallinn 27 : BSÁ 21 (á ég að trúa því að MR-tuddar komi sinni sjoppu í úrslitaleikinn?)
&
Draumurinn 21 : Vikivaki 22
* * *
Á eftir kemur svo tölvukarl og fjarlægir tölvuna mína í leit að vírusum. Ójá.