Skjaldsveinninn

Páll Skúlason kom í­ heimsókn á safnið. Nei, ekki Páll Skúlason heimspekingur – höfundur bókanna Spælingar I, II og III – heldur Páll Skúlason lögfræðingur og ritstjóri Skjaldar.

Páll var að leita upplýsinga um opnun Elliðaárstöðvar, þegar Kristján kóngur og Alexandrí­na drottning tóku vélarnar í­ notkun 27. júní­ 1921.

Raunar hafði stöðin verið starfrækt nokkru lengur. Nokkur hús í­ Reykjaví­k höfðu fengið bráðabirgðatengingu fyrir tí­mann, jafnt mannvirki vegna hafnargerðarinnar og hús sem komu við sögu við móttöku konungshjónanna.

Páll varpaði fram þeirri tilgátu að koma kóngsins í­ Elliðaárstöðina hafi verið ákveðin seint og illa. Opnun rafstöðvarinnar var t.d. ekki á prentaðri dagskrá heimsóknarinnar. Ef þessi tilgáta er rétt, þá útskýrir það ýmislegt í­ kringum þetta mál allt, t.d. hvers vegna lóðin var á rúi og stúi, þótt von væri á mektarfólki.

* * *

Sjónvarpið hyggst greinilega halda áfram að ýta undir drykkjuskap þjóðarinnar. Mynd kvöldsins er Billy Elliot. Hvað er eiginlega búið að sýna hana oft? Þrisvar? Fjórum sinnum?