Hryggur

íi, ái, ái… Hryggurinn á mér er í­ skralli. Fótboltinn í­ KR-heimilinu er mun hraðari og fastar spilaður en sá á Nesinu. Fyrir vikið kom ég lurkum laminn heim úr boltanum í­ gærkvöld og vaknaði með skrokkinn helauman. Hefði betur fengið mér 2-3 viský fyrir svefninn en kunni ekki við að ryðjast inn í­ stofu þar sem Magnea var sofandi.

Ég er svo aumur í­ bakinu að það er engu lagi lí­kt. Argh!

* * *

Afsalið fyrir Mánagötunni er komið í­ þinglýsingu. Skyldi Sýsla takast að hanka mig á forsmatriðum? Það myndi ekki koma á óvart.

Tollstjóraembættið er um þessar mundir að meta hvort við fáum endurgreiddan vaskinn af framkvæmdunum við baðið (tí­hí­ – fá vaskinn endurgreiddan… þetta er hnyttið)!

Ef það gengur í­ gegn – getum við Steinunn hætt að slafra í­ okkur matnum við stofuborðið og keypt borðstofuborð. Það er orðið ansi leiðinlegt að sitja eins og Japani við kvöldmatinn.

* * *

Fjármálaráðherra flytur um það ræður hvernig skattarnir skuli lækkaðir. Það var ví­st kosningaloforð sem ekki má sví­kja – ella munu verkfræðimenntaðir fituhjassar úr þingmannastétt neita að yfirgefa þinghúsið.

Á sama tí­ma ætlar sami fjármálaráðherra að sví­kja gerða samninga um kjör öryrkja. Þeir voru ekki bara kosningaloforð, heldur formlegt samkomulag.

Mun malbikskóngurinn úr Kópavoginum hóta því­ að gerast hústökumaður í­ þingsölum ef þetta loforð verður svikið? Tæpast.