Fór að heiman og í nettengda tölvu til að rigga upp fótboltapistli fyrir DV morgundagsins. Var í bölvaðri klemmu. Vangaveltupistill um fótbolta sem birtist daginn eftir lokaumferð Íslandsmótsins verður að fjalla um nýkrýnda Íslandsmeistara, ekki satt? Umferðinn hefst hins vegar kl. 16 og skilafresturinn á efninu rennur út um það leyti sem flautað er til leiksloka.
Var kominn inn á að semja tvo pistla: einn ef FH ynni og annan ef íBV ynni. Fékk þá skeyti um að pistillinn ætti ekki að birtast fyrr en á þriðjudag. Þá er það áhyggjuefni úr sögunni.
* * *
Tvær afmælisveislur í gær. Steinunn varð 27 ára, sem hefur lengi verið hennar skilgreining á því hvenær maður verður fullorðinn. Þar liggur hún í því.
Um kvöldið var svo þrítugsafmæli hjá Bjössa frænda. Fínt partý.
* * *
Luton vann enn einn leikinn í gær, að þessu sinni Stockport á útivelli 3:0.
Erum fyrir vikið með 25 stig af 27 mögulegum eftir níu umferðir.
Arsenal, Chelsea, Tottenham, Wigan og Luton eru einu taplausu liðin í deildarkeppninni (Barnet bætist í hópinn ef Nationwide Conference er tekin með). Spurning hvert þessara liða heldur lengst út.
Við eigum Peterborough heima á laugardaginn kemur.
Jamm.