Einhver lífseigasta mýtan í enska boltanum er sú að Ryan Giggs hafi átt þess kost að spila fyrir enska landsliðið, en hafi valið Wales í staðinn. Þetta hafa menn étið hver upp eftir öðrum og ég verið í hópi þeirra sem tóku það trúanlegt.
Snillingarnir á fótboltasíðum Guardian hafa nú leiðrétt þennan misskilning. Ryan Giggs var fæddur í Wales og foreldrar hans eru báðir þaðan. Giggs hefði því ekki verið tækur í enska landsliðið þótt hann glaður hefði viljað.
Misskilningurinn í þessu máli er sprottinn af því að Ryan Giggs lék í landsliði enskra skólapilta. Það er hins vegar ekki það sama og unglingalandslið, enda eru drengirnir valdir í það á grundvelli skólaumdæma en ekki ríkisfangs.
Merkilegt!
* * *
Leit á bókamarkað Eddu í Mörkinni. Það var nú hálf-þunnur þrettándi. Fékk samt Íslandssögu a-ö á kostakjörum, 6 þús. kall.
Spurning um að líta í Perluna líka og fylla upp í geisladiskasafnið. ítti leið þar fram hjá um daginn en náði ekki að skoða neitt af viti. Sýndist samt að hægt væri að fá Megas á skikkanlegum kjörum. Megas-staða heimilisins er döpur, fyrir utan safndiska og nýjasta dótið þá er „Á bleikum náttkjólum“ það eina sem til er á geisladisk. Þetta vantar því tilfinnanlegast:
i) Á góðri trú
ii) Megas
iii) Loftmynd
iv) Fram og aftur blindgötuna
v) barnaplötuna
– ætli ég sé að gleyma einhverju?