Davíð Oddson sagði í útvarpinu fyrr í kvöld að ef Þórólfur írnason væri Sjálfstæðismaður, þá væru vinstrimenn núna að krefjast afsagnar hans.
Það er rétt. Ég myndi krefjast afsagnar Þórólfs írnasonar ef hann væri borgarstjóri Sjálfstæðisflokksins.
Það er líka rétt að það væri hræsni að gera ekki það sama nú bara vegna þess að R-listinn er við völd en ekki íhaldið.
Enda er málið ákaflega einfalt. Mér finnst að Þórólfur írnason eigi að segja af sér. Ég verð sömuleiðis fyrir miklum vonbrigðum með VG ef flokkurinn kyngir þessu eins og öðru.
# # # # # # # # # # # # #
Af öllum innantómu frösunum sem fréttamenn hamra á í kringum þessar kosningar í BNA, þá er sá aulalegasti að „úrslitin gætu oltið á kjörsókninni – hversu margir kjósi úr einstökum þjóðfélagshópum“. – Uhh… með öðrum orðum, ef margir stuðningsmenn annars frambjóðandans mæta a kjörstað, þá gæti hann unnið? Vá, stórkostleg vísindi.
Ég held að ég hafi heyrt þessa froðu endurtekna í dag næstum jafn oft og frasann: „kosningarnar eru svo spennandi að stjórnmálaskýrendur treysta sér ekki til að spá!“ – Fá menn borgað fyrir að bulla svona?