Sóló

Aldrei þessu vant var eitthvað af viti í­ Mogganum í­ morgun.

Á gær þjarmaði Sigurður Grétar að „lagnapáfunum“ sem berjast gegn notkun plastefnis í­ lögnum. Það er hatrömm barátta.

Á morgun birtist svo grein eftir Hákon Fr. Jóhannsson í­ tilefni af nýlegum Lagnafréttapistli. Raunar ekki þeim um lagnapáfana, heldur þar sem getið var um Sóló-miðstöðvareldavélarnar. Þetta er stórfróðlegur pistill.

Stelum nú úr Mogganum:

írið 1938 hannaði faðir minn Sóló-miðstöðvareldavélina sem var með bökunarofni, nýjum reykgangi og vatnskatli sem gat hitað upp allt að fjögur meðalstór herbergi, en notaði samt óvenjulí­tið eldsneyti. Nýjung þótti að aðalplatan var með mörgum tungum niður í­ eldhólfið sem gerði það að verkum að hún hitaði sérstaklega fljótt og vel.

Vorið 1940 skrifaði Jóhann Fr. bréf til rannsóknarnefndar rí­kisins, sem var að láta rannsaka mótak ví­ða um land. Þar segist hann hafa fundið upp nýja gerð af miðstöðvareldavélum sem „brenna allskonar eldsneyti, en hafa þó reynst sérstaklega góðar fyrir mó“. Á þeim árum, í­ upphafi seinni heimsstyrjaldarinnar, var mór ví­ða eldsneytisgjafi til húsahitunar og eldunar í­ sveitum landsins. Eftir að olí­ukynding var sett í­ eldavélina var hún sett í­ fjölda fiskibáta.

írið 1939 stofnaði hann eldavélaverkstæði Jóhanns Fr. Kristjánssonar. Ég þekki nokkuð til gerðar Sóló-eldavélarinnar vegna þess að ég starfaði á árunum 1941-1942 á verkstæðinu við framleiðslu Sóló-eldavélarinnar.

Þetta er stórmerkilegt. Gaman væri að eiga Sóló-eldavél hér á safninu.