Það eru margar spennandi bækur að koma út fyrir jólin. Ein er þó efst á óskalistanum: Vísindabyltingin eftir Andra Steinþór Björnsson.
Á fyrsta lagi er Andri góður drengur og í öðru lagi er efnið mjög áhugavert. Vísindasagan er smánarlega vanrækt grein hérlendis. Þorsteinn Vilhjálmsson gaf út Heimsmynd á hverfanda hveli fyrir óralöngu og Andri ritstýrði við annan mann bæklingi með erindum úr fyrirlestrarröðinni „Er vit í vísindum?“ – þar sem talsvert var um vísindasöguskrif. Steindór J. Erlingsson hefur skrifað um erfðafræði og ritstýrði bók í lærdómsritunum á sviði líffræðisögunnar.
Mikið meira er það nú ekki. Það er eins og íslensku vísindasagnfræðingarnir endi allir í öðrum verkefnum.
Af öðrum bókum þá blóðlangar mig náttúrlega í Jarðfræðisögu Þorvaldar Thoroddsen, en 2.bindið er nýkomið út. Ef einhver þarna úti er með móral yfir að hafa ekki gefið mér stúentsgjöf, þá er heimilisfangið í símaskránni.