Postulínstappar

Jæja, enginn frí­dagur í­ dag eftir allt saman. Sótti Köru á BSÁ og skilaði henni á Mánagötuna, þurfti svo að rjúka í­ vinnuna til að grafa upp postulí­nstappa fyrir gamlar tappalagnir, sem vinir mí­nir í­ byggðasafninu í­ Hafnarfirði eru að betla fyrir sýningu.

Tappalagnir eru stórskemmtilegar, en því­ miður á ég ekki nógu mikið af þessu efni. Og heldur ekki af tjöruví­r, sem er bráðnauðsynlegur leikmunur.

Þið þarna úti sem lumið á hvoru tveggja: töppum eða ví­r – komið því­ á safnið og hljótið kaffibolla, koss og ævarandi þakklæti að launum. (Kaffi og kossar valkvæðir)

# # # # # # # # # # # # #

Útileikur gegn Brentford í­ kvöld. ígætis upphitun fyrir bikarleik liðanna á nýja árinu.

Annars vil ég miklu frekar fá þrjú stig í­ kvöld en að komast í­ fjórðu umferð bikarkeppninnar. Bikarævintýri eru skemmtileg og gefa kannski einhvern pening í­ kassann – en við VERíUM að komast upp úr þessari helv. deild. Klúbbnum blæðir út ef við þurfum að hanga þarna mikið lengur.