Það sem er best

Kom heim hálflúinn, eftir að hafa farið beint úr vinnunni til Palla, sem af snilli sinni og góðmennsku er búinn að hjálpa mér með tóndæmin fyrir GB-átök næstu daga. (Muna: Gefa Palla bjór á næstunni.)

Á svona dögum er gott að eiga góðar konur. Steinunn skipaði mér í­ bað, hellti út í­ það einhverju jukki sem bara konur vita hvað er og nuddaði svo þá mér bakið þegar upp úr var komið. Hrjúfraði mig svo með Valhalla-teiknimyndasögu, eftir að hafa keypt nokkrar nýjar bækur í­ Bóksölu stúdenta á dögunum. Sit núna í­ stofunni með Laphroaig-glas eins og fí­nn maður.

Það verður ekki mikið betra.

# # # # # # # # # # # # #
Ef ekki koma til stórtí­ðindi hér heima eða erlendis verður dregið í­ fyrstu umferð GB í­ Kastljósinu annað kvöld. Svo byrjar ballið næsta mánudagskvöld.

# # # # # # # # # # # # #

Á kvöld missti Luton toppsætið til Hull. Tranmere er bara fimm stigum á eftir. Bikarleikur um helgina, heima gegn Brentford. Hefði glaður skipt á þeim leik og sigri í­ dag. Þetta fer að verða verulega taugatrekkjandi.