Sneisafullt fréttabréf ísatrúarfélagsins komið í hús. Þar má finna greinar um goðafræði, vangaveltur um hvort talan níu hafi verið heilög í heiðni, frétt af nýbyrjuðu barnastarfi fyrir 5-12 ára, sem geta lært sögur af ásum – og síðast en ekki síst er auglýsing fyrir blótið á laugardaginn.
Þar verður spennandi dagskrá og góður matur. Það er hins vegar nauðsynlegt að kaupa miðann tímanlega á 2.000 kr. Eitthvað verður selt af miðum á staðnum á 2.500 kall, en ekki þó meira en matarbirgðir heimila. Um að gera að skella sér á ásatrúarblót á bóndadag.
# # # # # # # # # # # # #
Við Sverrir kenndum fyrsta heila tímann okkar í dag. Held að engum hafi leiðst og ágætis umræður spunnust á köflum. Við komumst þó ekki yfir jafnmikið og til stóð, enda er sígandi lukka best í námskeiðum sem þessum. Haldið verður áfram þar sem frá var horfið, við tímatal Súmera, á miðvikudaginn kl. 16:05 í VRII. Enn er tekið á móti nýjum nemendum.
# # # # # # # # # # # # #
Á dag fékk ég skemmtilegt verkefni í vinnunni – að komast til botns í sagnfræðilegu álitaefni. Það gerði ég svikalaust, en eins og svo oft í slíkum málum reyndist niðurstaðan alls ekki eins afdráttarlaus og vonast var til. Þess í stað var margt í mörgu – og sumt í sumu. Visst antíklímax, en skemmtilegt verkefni engu að síður.
Ætla ég að upplýsa hvert verkefnið var? Nei – svo sannarlega ekki. Er þetta þá ekki tilgangslaus bloggfærsla? Jú – líklega.