Ég er semsagt að fara á þorrablót í kvöld en ekki annað kvöld. Alltaf fréttir maður eitthvað nýtt. Jæja, þá er best að búa sig undir það.
Á blótum ísatrúarfélagsins mega gestir drekka guðunum skál. Hjá mér hefur Heimdallur yfirleitt orðið fyrir valinu. Á því felst ekki pólitískur brandari, heldur er um aðeins dýpri pælingu að ræða.
# # # # # # # # # # # # #
Á þessari síðu má sjá búningasögu Luton Town frá upphafi til okkar daga. Myndi bleiki, upphaflegi búningurinn, vera málið núna? Varla…
Appelsínuguli búningurinn frá áttunda áratugnum virðist út úr kú eða a.m.k. án sögulegs samhengis. Á þessum árum þóttu Hollendingar hins vegar flottasta knattpsyrnuþjóð Evrópu og því varð liturinn fyrir valinu. Tilraunin frá 1999 til að endurvekja appelsínugula litinn var vond og minnir helst á búning gangbrautarvarða.
Á morgun er útileikur gegn Colchester. Þar þurfum við í það minnsta jafntefli, helst sigur.
# # # # # # # # # # # # #
Á morgun eyddi ég nokkrum athugasemdum úr athugasemdakerfinu mínu. Það hef ég nánast aldrei þurft (eða nennt) að gera áður. Ég er mjög umburðarlyndur gagnvart því sem skrifað er um sjálfan mig á þessa síðu. Ég þoli mönnum líka ansi margt í skrifum um fólki úti í bæ, en ef menn eru með dylgjur um annað fólk án þess að gera það undir fullu nafni, þá er mér ekki skemmt. Slíkum skeytum verður eytt og ip-talan hripuð niður.